Heildarmynd fyrirtækisins

Vinnan sést.
Allir ná áttum.

Alsjá tengir teikningar, verkefni, fólk og rekstur í eina myndræna yfirsýn sem öll starfsstéttin getur notað.

Í virkri þróun með íslenskum verktökum

ALSJÁ
SameinaðMúrviðgerðirGluggaskipti

Myndræn framsetning — ekki skjáskot úr raunverkefni

14tungumál
Einsameiginleg yfirsýn
30daga varnargluggi
Lifandisamvinna og tilkynningar

Ekki enn ein eftirlíkingin

Verkefnastjórnun sem byrjar þar sem vinnan gerist.

Alsjá er ekki gæðahandbók sem endar ósnert í möppu. Hún er sameiginleg vinnumynd fyrir stjórnendur, verkstjóra, iðnaðarmenn, sendla og eftirlit—með réttu umfangi fyrir hvern og einn.

01

Sjáðu verkið

Settu verkpunkta beint á teikningar og útlitsmyndir. Myndir, athugasemdir, ábyrgð og staða fylgja punktinum.

02

Fylgdu ferlinu

Frá opnu atriði til lokunar, samþykktar eða höfnunar. Allir sjá næsta skref án þess að elta upplýsingar milli kerfa.

03

Varðveittu söguna

Alskrá og 30 daga skjalavistun gera breytingar rekjanlegar og draga úr hættu á óafturkræfum mistökum.

Fyrir allt fyrirtækið

Tungumálið á ekki að ráða hver fær yfirsýn.

Viðmótið er á 14 tungumálum og efni má þýða með samhengi úr byggingariðnaði. Starfsmaður fær skýrt verkefni á sínu máli; stjórnandinn heldur sameiginlegri heildarmynd.

  • Stöðugildi endurspegla raunveruleg verkefni og ábyrgð.
  • Eftirlit sér aðeins það sem hefur verið deilt.
  • Tilkynningar rata til þeirra sem þurfa að bregðast við.

Vex með rekstrinum

Kjarninn heldur utan um verkefnin. Þú velur restina.

Skipulagskerfin eru sjálfstæðir viðbótarpakkar sem tengjast sömu fólki, verkefnum, bækistöðvum og heimildum.

Verkfæri

QR, staðsetning, ábyrgð og saga.

Vinnuvélar

Mælar, viðhald og rekstrarkostnaður.

Bílafloti

Skoðanir, reglur og verkefnatenging.

Aðstaða

Bækistöðvar, gámar og kerfiseiningar.

Sendiferðir

Beiðnir, aðstoð og lifandi tilkynningar.

Pallar og lyftur

Staðsetning og skipulag búnaðar.

Traust frá grunni

Sveigjanleg yfirsýn án þess að blanda fyrirtækjum saman.

Gögn hvers fyrirtækis eru afmörkuð, aðgerðir ráðast af heimildum og viðkvæmar breytingar þurfa rekjanlega leið. Stuðningur Alsjár verður alltaf sýnilegur og tímabundinn—aldrei leynilegur bakdyragangur.

01

Aðskilin fyrirtæki. Tenant-mörk eru varin í gagnagrunni, ekki aðeins í viðmótinu.

02

Vald eftir þörf. Skoðun, breytingar, eignarhald og framsal eru aðskilin.

03

Rekjanleg saga. Skjalavistun og Alskrá gera mistök afturkræf og aðgerðir sýnilegar.

Einfalt að byrja

Aðgangur sem verðleggur ábyrgð—ekki forvitni.

Grunnþátttaka á að vera aðgengileg öllu starfsfólki. A- og B-aðgangar fylgja meiri stjórnun og umsjón; kerfispakkar bætast við eftir þörfum fyrirtækisins.

CÞátttakaSjá, skrá og vinna innan síns umfangs
BUmsjónStýra vinnu og upplýsingum sem hafa verið falin
AStjórnunStofna, stilla og bera víðtæka ábyrgð

Sjáðu heildarmyndina

Alsjá á að létta vinnuna,
ekki bæta við nýju skrifræði.

Segðu okkur hvernig fyrirtækið þitt vinnur. Við sýnum hvernig Alsjá getur tengt fólkið, verkefnin og reksturinn.

Bóka sýningu